Leita í fréttum mbl.is

Breytt dagskrá

Verðum í Oddfellowhúsinu v/Strandveg bæði kvöldin.  Mæting kl. 19:30.

Kostnaður við ættarmótið

Mismunandi verð er á ættarmótið eftir aldri og er sem hér segir:

0-6 ára frítt

7-15 ára 1500

16 ára og eldri 7500

Best væri ef lagt væri inn á reikning ættarmótsins fyrir 10. júní.  Reiknisnúmerið er 0582-26-2077 og kennitalan er 111055-2629.


Eyjastemmning

 

 


Skráning birtist ekki í augnablikinu í gestabókinni

Unnið er að því að fá færslur sem eru skrifaðar í gestabókina birtar :)

Þið megið einnig skrá ykkur með því að setja ath.semd við þessa færslu og þessu verður haldið vel til haga :-)

Hlökkum til að sjá ykkur


Vera dugleg að skrá

Nú fer lokaundirbúningur að hefjast

Gaman væri að heyra frá ykkur

Kveðja Svana


Dagskrá

Föstudagur 17.júní

  • 17.júní fjör í bænum eftir hádegi.
  • Mæting í Týssheimili kl. 19:30, þar verður súpa og brauð, myndataka, leikir fyrir börnin, létt spjall og söngur.

Laugardagur 18. júní

  • Mæting við kirkjugarðshliðið kl. 14:00.  Gengið að leiði Ólafs og Lilju.  Síðan verður farið í göngu að húsum þar sem Ólafur og Lilja og börn þeirra bjuggu.
  • Kaffishús og stutt Eyjamynd fyrir þá sem það vilja.
  • Mæting við Oddfellowhúsið v/Strandveg kl. 19:30.  Matur og skemmtidagskrá

Athugið að bæði kvöldin þarf hver og einn að koma með drykki fyrir stóra og smáa. 


Matseðill á ættarmóti - Veisluþjónusta Einsa kalda

Föstudagur 17. júni

Humarsúpa og brauð

Laugardagur 18. júní

Ferskt sumarsalat með rominkáli, jarðaberjum, mangó, tómötum, ruccolaolíu og parmesanosti

Pönnusteiktur karfi með karrýkrydduðum hrísgrjónum og humarsósu

Skötuselsþynnur bakaðar í fennelsýrópi ásamt steinseljumús og sítrussósu

Kjúklingabringur bakaðar í ítalskri sósu með parmaskinku, tómötum, basil og mosarella

Villikryddað lambalæri með baconfylltum kartöflum, pönnusteiktu grænmeti og rauðvínssósu

 

 


Heimsókn til Eyja


 Eyjarnar eru engu líkar, ómótstæðilegar.

Búið að opna Landeyjahöfn

Nú er því ekkert til fyrirstöðu að storma á ættarmót. Það væri frábært að ef þeir sem ætla að mæta mundu skrá sig í gestabók.

landeyjahofn

Réttar myndir

Hér fyrir neðan koma myndir af Ólafi og Lilju, sem Birna sendi inn. Þær er einnig að finna í myndaalbúmi .

oj lh 15cm

Næsta síða »

Ættarmót

Nefndin
Nefndin

Hérna munu birtast upplýsingar um ættarmót afkomenda Ólafs Jenssonar og Lilju Haraldsdóttir sem á að halda í Vestmannaeyjum snemma næsta sumar. Allar myndir af ættmennum eru ákaflega vel þegnar og má senda þær á netfangið olafurjensson@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband